Niðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 12 1115 OG RIKV 13 0215


Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 12 1115 og RIKV 13 0215  með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. 

Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360). 

Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar:

RIKV 12 1115:

Alls bárust 12 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 7.700 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 6.200 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,189 (flatir vextir 3,20%). 

RIKV 13 0215:

Alls bárust 9 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 6.350 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 5.950 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,247 (flatir vextir 3,49%).


Attachments