Islandsbanki hf. : Leiðrétting á lýsingu skuldabréfa, ISLA CB 16, í kerfi Verðbréfaskráningar Íslands


Íslandsbanki er útgefandi skuldabréfa með auðkennið ISLA CB 16 samkvæmt
endanlegum skilmálum dagsettum 18. október 2013. Komið hefur í ljós að skilmálar
skuldabréfanna eru rangt tilgreindir í lýsingu skuldabréfanna, dags. 17. október
2013 og því rangt skráðir í kerfi Verðbréfaskráningar Íslands. Þar er skilmálum
skuldabréfanna lýst þannig í kafla 2.2 að fjöldi gjalddaga séu tveir á ári, 22.
apríl og 22. október fram að lokagjalddaga 22. október 2016.

Í endanlegum skilmálum útgáfunnar (Final Terms), dags. 18. október 2013, kemur
fram að bréfin skuli greiðast að öllu leyti á lokagjalddaga, þann 22. október
2016.



Íslandsbanki mun fara þess á leit við eigendur skuldabréfanna að þeir samþykki
breytingu á skilmálum skuldabréfanna í lýsingu útgáfunnar í kerfi
Verðbréfaskráningar þannig að þar komi fram að engar afborganir greiðist af
skuldabréfunum fyrr en á lokagjalddaga 22. október 2016.



Nánari upplýsingar veita:



  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma
    440 3187 / 844 3187.
  * Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í
    síma 440 3925.


[HUG#1777186]