Islandsbanki hf. : Leiðrétting á útgáfulýsingu skuldabréfa, ISLA CB 16, í kerfi Verðbréfaskráningar Íslands samþykkt af eigendum


Íslandsbanki gaf út flokk skuldabréfa með auðkennið ISLA CB 16 og birti
endanlega skilmála þann 18. október 2013. Skilmálar skuldabréfanna voru rangt
tilgreindir í útgáfulýsingu skuldabréfanna, dags. 17. október 2013, og því rangt
skráðir í kerfi Verðbréfaskráningar Íslands. Þar var skilmálum skuldabréfanna
lýst þannig í kafla 2.2 að fjöldi gjalddaga væru tveir á ári, 22. apríl og 22.
október, fram að lokagjalddaga 22. október 2016. Í endanlegum skilmálum
útgáfunnar (Final Terms), dags. 18. október 2013, kemur fram að bréfin skuli
greiðast að öllu leyti á lokagjalddaga, þann 22. október 2016.



Íslandsbanki fór þess á leit við eigendur skuldabréfanna að þeir samþykktu
breytingu á skilmálum skuldabréfanna í útgáfulýsingu útgáfunnar í kerfi
Verðbréfaskráningar þannig að þar kæmi fram að engar afborganir greiðist af
skuldabréfunum fyrr en á lokagjalddaga 22. október 2016.  Skilmálabreyting þessi
hefur verið samþykkt af eigendum bréfanna og breyting í útgáfulýsingu útgáfunnar
í kerfi Verðbréfaskráningar hefur átt sér stað.



Nánari upplýsingar veita:



  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma
    440 3187.
  * Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í
    síma 440 3925.


[HUG#1778571]