Islandsbanki hf. : Ráðgefandi álit EFTA dómstólsins


EFTA dómstóllinn birti í dag ráðgefandi álit á framkvæmd verðtryggingar hér á
landi. Álit dómstólsins er að sú framkvæmd,  sem tíðkaðist í gildistíð eldri
laga um neytendalán, að miða við 0% verðbólgu við útreikning heildarkostnaðar
lántaka stangist á við neytendalánatilskipun Evrópusambandsins ef þekkt
verðbólgustig er annað.  Í álitinu er ekki mælt fyrir um hvaða afleiðingar það
hefur, heldur er þar tekið fram að það sé íslenskra dómstóla að meta það. Álit
EFTA verður notað við úrlausn dómsmáls sem rekið er fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur. Á þessari stundu er ekki unnt að segja til um hvaða þýðingu þetta
ráðgefandi álit EFTA dómstólsins hefur við úrlausn þess máls eða hvaða
fordæmisgildi slík úrlausn mun hafa.

Hafi endanleg niðurstaða íslenskra dómstóla áhrif á gildi verðtryggingarákvæða
lánssamninga getur það haft fjárhagsleg áhrif á Íslandsbanka, en það er mat
bankans að eigið fé hans muni við slíkar aðstæður engu að síður uppfylla
eiginfjárviðmið Fjármálaeftirlitsins.  Efnahagur Íslandsbanka er traustur þar
sem bankinn er með yfir 200 milljarða króna í heildar eigið fé og
eiginfjárhlutfall  bankans er nú 29,4%, sem er vel yfir eiginfjárviðmiðum
Fjármálaeftirlitsins.


Nánari upplýsingar veita:

 Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma
440 4752

Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma
440 3678.


[HUG#1873570]