Islandsbanki hf. : Íslandsbanki lýkur víxlaútboði


Íslandsbanki  hf. lauk í dag útboði á einum víxli til 6 mánaða. Flokkurinn getur
að  hámarki orðið 1,5 ma. kr. að nafnvirði.  Útboðinu var þannig háttað að boðið
var í magn á fyrirfram ákveðnu verði, á 5,20% flötum vöxtum (verð: 97,4385).

Tilboðum  var  tekið  að  fjárhæð  340 m.  kr.  að nafnvirði. Fyrir útboðið voru
útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 4,64 ma. kr.

Bréfin  voru seld  til breiðs  hóps fjárfesta.  Stefnt er  að töku  víxlanna til
viðskipta í Nasdaq Iceland þann 29. desember næstkomandi.

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma
    440 4752/ 844 4752.
  * Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir, pr@islandsbanki.is og í
    síma 844 3678.


[HUG#1880369]