Reglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.


Í 51. viku 2014 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 1.773.200 eigin hluti fyrir 47,5 m.kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Hlutir í eigu TM eftir viðskipti
16.12.2014 14:16 200.000 27,05 5.410.000 16.718.668
16.12.2014 14:33 22.500 27,05 608.625 16.741.168
16.12.2014 15:11 22.500 27,05 608.625 16.763.668
16.12.2014 15:24 22.500 27,05 608.625 16.786.168
17.12.2014 10:27 500.000 27,00 13.500.000 17.286.168
17.12.2014 11:23 500.000 26,80 13.400.000 17.786.168
18.12.2014 14:31 500.000 26,35 13.175.000 18.286.168
18.12.2014 15:14 5.700 26,35 150.195 18.291.868
Samtals   1.773.200      47.461.070  

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. maí 2014, sbr. og tilkynningu til Kauphallar 30. apríl 2014.

TM hefur nú keypt samtals 18.291.868 hluti í félaginu sem samsvarar 87,1% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 468,0 milljónum króna. TM á nú samtals 2,41% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 21.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2015 en þó aldrei síðar en 31. mars 2015 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

 

Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Viðarsson, forstjóri

s: 515-2609

sigurdur@tm.is