VIÐSKIPTAYFIRLIT MARS 2015 – NASDAQ ICELAND


Reykjavík, 01. apríl, 2015 – Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. 

Helstu atriði úr viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland (Kauphallarinnar) fyrir mars 2015 eru eftirfarandi:    

Hlutabréf:

·         Heildarviðskipti með hlutabréf í marsmánuði námu 20.574 milljónum eða 935 milljónum á dag. Það er 46% lækkun frá fyrri mánuði, en í febrúar námu viðskipti með hutabréf 1.721 milljón á dag.  Þetta er 16% hækkun á milli ára (viðskipti í mars 2014 námu 808 milljónum á dag).

·         Mest voru viðskipti með bréf Icelandair Group (ICEAIR)  3.841 milljón, Marel (MARL) 2.687 milljónir, N1 (N1) 2.176 milljónir, VÍS (VIS) 1.948 milljónir og HB Granda (GRND),  1.862 milljónir.

·          Úrvalsvísitalan (OMXI8) lækkaði um 2,5% á milli mánaða og stendur nú í 1.342 stigum.

·         Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Landsbankinn með mestu hlutdeildina, 26,6% (28,2% á árinu), Arion banki með 21,8% (21,8% á árinu), og Íslandsbanki með 19,8% (20,3% á árinu).

·         Í lok mars voru hlutabréf 17 félaga skráð á Aðalmarkaði og First North Iceland og nemur heildarmarkaðsvirði þeirra 724 milljörðum króna (samanborið við 736 milljarða í febrúar). 

Skuldabréf:

·         Heildarviðskipti með skuldabréf námu 189 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 8,6 milljarða veltu á dag. Þetta er 10% hækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í febrúar námu 7,8 milljörðum á dag), og 11% lækkun frá fyrra ári (viðskipti í mars 2014 námu 9,6 milljörðum á dag).

·         Alls námu viðskipti með ríkisbréf 164 milljörðum en viðskipti með íbúðabréf námu 17,1 milljarði. Mest voru viðskipti með RIKB 19 0226, 31,4 milljarðar, RIKB 20 0205, 23,2 milljarðar, RIKB 22 1026, 21,5 milljarðar, RIKB 25 0612, 20,5 milljarðar og RIKS 21 0414, 18,3 milljarðar.

·         Á skuldabréfamarkaði var Landsbankinn með mestu hlutdeildina, 22,3% (24,2% á árinu), Íslandsbanki með 20,2% (19,9% á árinu), og Arion banki með 18,9% (15,7% á árinu).

Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) hækkaði um 0,9% í mars og stendur í um 1.115 stigum.  Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) lækkaði um -3,2% og sú verðtryggða (NOMXIREAL) hækkaði um 2,9%. 

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá http://www.nasdaqomx.com/transactions/markets/nordic/statistics

 

Um Nasdaq

Nasdaq  (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 70 mörkuðum í 50 löndum og  knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 3,500 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 9.1 billjón Bandaríkjadala. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu http://business.nasdaq.com/ 

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.

Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland, Nasdaq Riga, Nasdaq Stockholm, Nasdaq Tallin, Nasdaq Vilnius, Nasdaq Clearing og Nasdaq Broker Services eru vörumerkin fyrir Nasdaq OMX Copenhagen A/S, Nasdaq OMX Helsinki Ltd., Nasdaq OMX Iceland hf., Nasdaq OMX Riga, AS, Nasdaq OMX Stockholm AB, Nasdaq OMX Tallinn AS, Nasdaq OMX Vilnius, Nasdaq OMX Clearing AB, Nasdaq OMX Broker Services AB. Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm. Nasdaq Baltic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Tallinn, Nasdaq Riga og Nasdaq Vilnius.

         Kristín Jóhannsdóttir
         kristin.johannsdottir@nasdaq.com
         s. 525 2844


Attachments

2015_0401_Viðskiptayfirlit fyrir mars 2015.pdf