Framboð til stjórnar Reita fasteignafélags hf. á aðalfundi 30. apríl 2015 og krafa um margfeldiskosningu.


Aðalfundur Reita fasteignafélags hf. verður haldinn þann 30. apríl 2015 kl. 14.00 á Hótel Reykjavík Natura, þingsal 2.

Framboðsfrestur til stjórnar Reita fasteignafélags hf. rann út þann 25. apríl síðastliðinn.

Eftirtaldir aðilar hafa gefið kost á sér í stjórn félagsins:

Elín Árnadóttir
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
Finnur Sveinbjörnsson
Gunnar Þór Gíslason
Martha Eiríksdóttir
Thomas Möller
Þórarinn V. Þórarinsson

Stjórn hefur metið öll framboð til stjórnar gild, sbr. 63. gr. a laga um hlutafélög nr. 2/1995.
Ekki liggja fyrir framboð til varastjórnar félagsins enda verður lögð fram tillaga á aðalfundi um að framvegis verði ekki varamenn í stjórn félagsins.

Nánari upplýsingar um frambjóðendur er að finna í viðhengi.

Krafa um margfeldiskosningu:

Stjórn Reita fasteignafélags hf. hefur borist krafa frá hluthöfum um að beitt verði margfeldiskosningu til kosningar stjórnar félagsins sem fram fer á aðalfundi félagsins þann 30. apríl næstkomandi. Umrædd krafa barst stjórn félagsins innan tilskilins frests og barst frá hluthöfum sem hafa yfir að ráða meiru en 1/10 hlutafjár í félaginu. Margfeldiskosningu verður því beitt við stjórnarkjörið.

Samkvæmt c. lið 6. mgr. 63. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995 fer margfeldiskosning þannig fram að kosið skal á milli einstaklinga. Gildi hvers atkvæðis skal margfaldað með fjölda þeirra stjórnarmanna sem kjósa skal og má hluthafi skipta atkvæðamagni sínu, þannig reiknuðu, í hverjum þeim hlutföllum, sem hann sjálfur kýs, á jafnmarga menn og kjósa skal eða færri. Ef ekki er á atkvæðaseðli getið skiptingar atkvæða á milli þeirra sem þau eru greidd skal þeim skipt að jöfnu.

Samkvæmt 2. mgr. 17. gr. samþykkta Reita fasteignafélags hf. skal tryggja að kynjahlutföll innan stjórnar séu sem jöfnust og að hlutfall hvors kyns sé ekki lægra en 40%. Við stjórnarkjör skulu tveir efstu frambjóðendur af hvoru kyni, sem flest atkvæði hljóta teljast réttkjörnir auk þess frambjóðanda sem flest atkvæði fær af þeim frambjóðendum sem eftir standa.

Reykjavík, 26. apríl 2015,
Stjórn Reita fasteignafélags hf.


Attachments

Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar Reita fasteignafélags hf. - 26.4.2015.pdf