VIÐSKIPTAYFIRLIT APRÍL 2015 – NASDAQ ICELAND


Reykjavík, 04. maí, 2015 – Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.

Helstu atriði úr viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland (Kauphallarinnar) fyrir apríl 2015 eru eftirfarandi:   

Hlutabréf:

·         Heildarviðskipti með hlutabréf í aprílmánuði námu 24.680 milljónum eða 1.371 milljón á dag. Það er 47% hækkun frá fyrri mánuði, en í mars námu viðskipti með hutabréf 935 milljónum á dag.  Þetta er 20% lækkun á milli ára (viðskipti í apríl 2014 námu 1.706 milljónum á dag).

·         Mest voru viðskipti með bréf Reita fasteignafélags (REITIR), 7.332 milljónir, Marel (MARL), 5.564 milljónir, Icelandair Group (ICEAIR),  4.380 milljónir, HB Granda (GRND),  1.383 milljónir og N1 (N1), 936 milljónir.

·          Úrvalsvísitalan (OMXI8) hækkaði um 2,96% á milli mánaða og stendur nú í 1.382 stigum.

·         Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Landsbankinn með mestu hlutdeildina, 49,3% (33,2% á árinu), Arion banki með 15,1% (20,2% á árinu), og Íslandsbanki með 12,1% (18,4% á árinu).

·         Í lok apríl voru hlutabréf 19 félaga skráð á Aðalmarkaði og Nasdaq First North á Íslandi. þar af tvö félög nýskráð á Aðalmarkað í apríl, Reitir fasteignafélag og Eik fasteignafélag.  Nemur heildarmarkaðsvirði skráðra félaga 803 milljörðum króna (samanborið við 724 milljarða í mars).

Skuldabréf:

·         Heildarviðskipti með skuldabréf námu 88 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 4,9 milljarða veltu á dag. Þetta er 43% lækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í mars námu 8,6          milljörðum á dag), en 4% hækkun frá fyrra ári (viðskipti í apríl 2014 námu 4,7 milljörðum á dag).

·         Alls námu viðskipti með ríkisbréf 76 milljörðum en viðskipti með íbúðabréf námu 10 milljörðum. Mest voru viðskipti með RIKB 19 0226, 16,9 milljarðar, RIKB 22 1026, 11,1 milljarður, RIKB 20 0205, 10,4 milljarðar, RIKS 21 0414, 10,0 milljarðar og RIKB 31 0124, 7,9 milljarðar.

·         Á skuldabréfamarkaði var MP banki með mestu hlutdeildina, 21,5% (17,6% á árinu), Arion banki með 20,7% (16,6% á árinu) og Landsbankinn með 19,8% (23,4% á árinu).

·         Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) lækkaði um 0,9% í apríl og stendur í um 1.105 stigum.  Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) lækkaði um -0,2% og sú verðtryggða (NOMXIREAL) lækkaði um 1,2%.      

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá http://www.nasdaqomx.com/transactions/markets/nordic/statistics   

#

Um Nasdaq

Nasdaq  (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 70 mörkuðum í 50 löndum og  knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 3,500 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 9.1 billjón Bandaríkjadala. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu http://business.nasdaq.co

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.

Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland, Nasdaq Riga, Nasdaq Stockholm, Nasdaq Tallin, Nasdaq Vilnius, Nasdaq Clearing og Nasdaq Broker Services eru vörumerkin fyrir Nasdaq OMX Copenhagen A/S, Nasdaq OMX Helsinki Ltd., Nasdaq OMX Iceland hf., Nasdaq OMX Riga, AS, Nasdaq OMX Stockholm AB, Nasdaq OMX Tallinn AS, Nasdaq OMX Vilnius, Nasdaq OMX Clearing AB, Nasdaq OMX Broker Services AB. Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm. Nasdaq Baltic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Tallinn, Nasdaq Riga og Nasdaq Vilnius.     

         Fjölmiðlar:
         Kristín Jóhannsdóttir
         kristin.johannsdottir@nasdaq.com
         525 2844 / 868 9836


Attachments

2015_0504_Viðskiptayfirlit fyrir apríl 2015.pdf