VIÐSKIPTAYFIRLIT JÚNÍ 2015 – NASDAQ ICELAND


Reykjavík, 01. júlí, 2015 – Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.

Helstu atriði úr viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland (Kauphallarinnar) fyrir júní 2015 eru eftirfarandi:   

Hlutabréf:

·         Heildarviðskipti með hlutabréf í júnímánuði námu 29.116 milljónum eða 1.386 milljónum á dag. Það er 15% lækkun frá fyrri mánuði, en í maí námu viðskipti með hutabréf 1.623 milljónum á dag.  Þetta er 5% hækkun á milli ára (viðskipti í júní 2014 námu 1.315 milljónum á dag).

·         Mest voru viðskipti með bréf Icelandair Group (ICEAIR), 7.275 milljónir, Eimskipafélags Íslands (EIM), 2.882 milljónir, Reita fasteignafélags (REITIR), 2.531 milljón, N1 (N1), 2.487 milljónir og Marel (MARL), 2.433 milljónir.

·          Úrvalsvísitalan (OMXI8) hækkaði um 2,3% á milli mánaða og stendur nú í 1.478 stigum.

·         Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Arion banki með mestu hlutdeildina, 29,9% (22,2% á árinu), Íslandsbanki með 22,6% (18,9% á árinu), og Landsbankinn með 16,3% (30,5% á árinu).

Í lok júní voru hlutabréf 19 félaga skráð á Aðalmarkaði og Nasdaq First North á Íslandi.  Nemur heildarmarkaðsvirði skráðra félaga 864 milljörðum króna (samanborið við 847 milljarða í maí). 

Skuldabréf:

·         Heildarviðskipti með skuldabréf námu 181 milljarði í síðasta mánuði sem samsvarar 8,6 milljarða veltu á dag. Þetta er 2% hækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í maí námu 8,5 milljörðum á dag), en 34% hækkun frá fyrra ári (viðskipti í júní 2014 námu 6,4 milljörðum á dag).

·         Alls námu viðskipti með ríkisbréf 164 milljörðum en viðskipti með íbúðabréf námu 9 milljörðum. Mest voru viðskipti með RIKB 19 0226, 30,7 milljarðar, RIKB 22 1026, 29,0 milljarðar, RIKB 25 0612, 27,4 milljarðar, RIKB 20 0205, 25,5 milljarðar og RIKB 31 0124, 20,9 milljarðar.

·         Á skuldabréfamarkaði var Íslandsbanki með mestu hlutdeildina, 27,1% (21,0% á árinu), MP banki með 24,5% (20,6% á árinu) og Landsbankinn með 17,0% (21,5% á árinu).

·         Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) hækkaði um 2,3% í júní og stendur í 1.124 stigum. Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) hækkaði um 2,8% og sú verðtryggða (NOMXIREAL) hækkaði um 2,0%.               

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá http://www.nasdaqomx.com/transactions/markets/nordic/statistics

#

Um Nasdaq

Nasdaq  (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 70 mörkuðum í 50 löndum og  knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 3,500 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 9.1 billjón Bandaríkjadala. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu http://business.nasdaq.com/

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.

Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland, Nasdaq Riga, Nasdaq Stockholm, Nasdaq Tallin, Nasdaq Vilnius, Nasdaq Clearing og Nasdaq Broker Services eru vörumerkin fyrir Nasdaq OMX Copenhagen A/S, Nasdaq OMX Helsinki Ltd., Nasdaq OMX Iceland hf., Nasdaq OMX Riga, AS, Nasdaq OMX Stockholm AB, Nasdaq OMX Tallinn AS, Nasdaq OMX Vilnius, Nasdaq OMX Clearing AB, Nasdaq OMX Broker Services AB. Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm. Nasdaq Baltic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Tallinn, Nasdaq Riga og Nasdaq Vilnius.

         FJÖLMIÐLASAMSKIPTI
         Kristín Jóhannsdóttir
         S. 868 9836
         kristin.johannsdottir@nasdaq.com


Attachments

2015_0701_Viðskiptayfirlit fyrir júní 2015.pdf