VIÐSKIPTAYFIRLIT NÓVEMBER 2015 – NASDAQ ICELAND


Reykjavík, 01. desember, 2015 – Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Helstu atriði úr viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland (Kauphallarinnar) fyrir nóvember 2015 eru eftirfarandi:   

Hlutabréf:

·         Heildarviðskipti með hlutabréf í nóvembermánuði námu 47.276 milljónum eða 2.251 milljón á dag. Það er 14% lækkun frá fyrri mánuði, en í október námu viðskipti með hutabréf 2.614 milljónum á dag.  Þetta er 27% hækkun á milli ára (viðskipti í nóvember 2014 námu 1.773 milljónum á dag).

·         Mest voru viðskipti með bréf Icelandair Group (ICEAIR), 15.936 milljónir, Marel (MARL), 6.507 milljónir, VÍS (VIS), 3.816 milljónir, Eimskipafélags Íslands (EIM), 3.535 milljónir,  og Reita fasteignafélags (REITIR), 2.806 milljónir.

·         Úrvalsvísitalan (OMXI8) lækkaði um 1,7% á milli mánaða og stendur nú í 1.816 stigum.

·         Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Kvika banki með mestu hlutdeildina, 22,3% (20,1% á árinu*), Landsbankinn með 22,2% (26,8% á árinu), og Arion banki með 21,3% (22,8% á árinu).

·         Í lok nóvember voru hlutabréf 20 félaga skráð á Aðalmarkaði og Nasdaq First North á Íslandi. Nemur heildarmarkaðsvirði skráðra félaga 1.020 milljörðum króna (samanborið við 1.038 milljarða í október).

Skuldabréf:

·         Heildarviðskipti með skuldabréf námu 232 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 11,1 milljarðs veltu á dag. Þetta er 27% hækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í október námu 8,7 milljörðum á dag), en 51% hækkun frá fyrra ári (viðskipti í nóvember 2014 námu 7,3 milljörðum á dag).

·         Alls námu viðskipti með ríkisbréf 190 milljörðum en viðskipti með íbúðabréf námu 23 milljörðum. Mest voru viðskipti með RIKB 25 0612, 37,5 milljarðar, RIKB 22 1026, 29,7 milljarðar, RIKB 19 0226, 29,2 milljarðar, RIKB 31 0124, 27,7 milljarðar og RIKB 20 0205, 25,2 milljarðar.

·         Á skuldabréfamarkaði var Arion banki með mestu hlutdeildina, 23,6% (18,1% á árinu), Íslandsbanki með 23,2% (20,2% á árinu) og Kvika banki með 21,9% (29,0% á árinu*).

·         Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) lækkaði um 3,8% í nóvember og stendur í 1.156 stigum.  Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) lækkaði um 3,0% og sú verðtryggða (NOMXIREAL) lækkaði um 3,8%.                        

*Samanlögð hlutdeild Kviku banka og Straums fjárfestingabanka

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá http://www.nasdaqomx.com/transactions/markets/nordic/statistics

#

Um Nasdaq

Nasdaq  (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 70 mörkuðum í 50 löndum og  knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 3,600 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 9.6 billjón Bandaríkjadala. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu http://business.nasdaq.com/

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.

 

Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland, Nasdaq Riga, Nasdaq Stockholm, Nasdaq Tallin, Nasdaq Vilnius, Nasdaq Clearing og Nasdaq Broker Services eru vörumerkin fyrir Nasdaq OMX Copenhagen A/S, Nasdaq OMX Helsinki Ltd., Nasdaq OMX Iceland hf., Nasdaq OMX Riga, AS, Nasdaq OMX Stockholm AB, Nasdaq OMX Tallinn AS, Nasdaq OMX Vilnius, Nasdaq OMX Clearing AB, Nasdaq OMX Broker Services AB. Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm. Nasdaq Baltic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Tallinn, Nasdaq Riga og Nasdaq Vilnius.

         Fjölmiðlar:
         Kristín Jóhannsdóttir
         kristin.johannsdottir@nasdaq.com
         s. 868 9836


Attachments

2015_1201_Viðskiptayfirlit fyrir nóvember 2015.pdf