Lánasjóður sveitarfélaga - Afkomutilkynning 30. júní 2016

Hagnaður Lánasjóðsins 700 m.kr. á fyrri hluta ársins 2016


Hagnaður tímabilsins nam 700 milljónum króna samanborið við 414 milljónir króna á sama tíma árið 2015.

Heildareignir sjóðsins í lok tímabilsins voru 76.719 milljónir króna á móti 77.111 milljónum króna í árslok 2015. Heildarútlán sjóðsins námu 71.045 milljónum króna í lok tímabilisins samanborið við 71.574 í árslok 2015. Þá nam eigið fé 16.889 milljónum króna á móti 16.712 milljónum króna í árslok 2015 og hefur hækkað um 1% á tímabilinu. Vegið eiginfjárhlutfall samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki er 80% en var 79% í árslok 2015.

Framtíðarhorfur

Lánasjóðurinn mun starfa í meginatriðum líkt og undanfarin ár þar sem unnið hefur verið að eflingu á starfsemi hans og aukinni þjónustu við sveitarfélögin með því að nýta gott lánstraust sjóðsins til að útvega sveitarfélögunum lánsfé á hagstæðum kjörum. 

Kynningarfundur

Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila verður haldinn þriðjudaginn 30. ágúst 2016 í starfsstöð sjóðsins, Borgartúni 30, 5 hæð. Óttar Guðjónsson framkvæmdastjóri mun kynna afkomu og efnahag sjóðsins ásamt því að svara spurningum. Kynningin hefst kl. 8:30.

Nánari upplýsingar veitir: Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, s. 515 4949

 


Attachments

Árshlutareikningur Lánasjóðs sveitarfélaga - 2016 06 30.pdf Afkomutilkynning LS 2016 06 30.pdf