HB Grandi: Birting ársreiknings 2016, miðvikudaginn 22. febrúar 2017


HB Grandi mun birta ársreikning félagsins eftir lokun markaða miðvikudaginn 22. febrúar 2017.

Opinn kynningarfundur um afkomu félagsins verður haldinn  fimmtudaginn 23. febrúar klukkan 8:30 í höfuðstöðvum félagsins að Norðurgarði 1.

Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri, mun kynna uppgjörið og svara spurningum.