Viðskiptayfirlit febrúar 2017 – Nasdaq Iceland


Reykjavík, 1. mars, 2017 – Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.

Helstu atriði úr viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland (Kauphallarinnar) fyrir febrúar 2017 eru eftirfarandi:   

Hlutabréf:

·         Heildarviðskipti með hlutabréf í febrúar námu 85.245 milljónum eða 4.262 milljónum á dag. Það er 88% hækkun frá fyrri mánuði, en í janúar námu viðskipti með hlutabréf 2.272 milljónum á dag.  Þetta er 67% hækkun á milli ára (viðskipti í febrúar 2016 námu 2.546 milljónum á dag).

·         Mest voru viðskipti með bréf Marel (MARL), 17.634 milljónir, Icelandair Group (ICEAIR), 13.052 milljónir, N1 (N1), 8.412 milljónir, Haga (HAGA), 6.741 milljón, og Símans (SIMINN), 6.457 milljónir.

·         Úrvalsvísitalan (OMXI8) hækkaði um 0,3% á milli mánaða og stendur nú í 1.725 stigum.

·         Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Landsbankinn með mestu hlutdeildina, 26,8% (26,9% á árinu), Arion banki með 21,0% (21,5% á árinu), og Fossar markaðir með 16,9% (14,8% á árinu). 

·         Í lok febrúar voru hlutabréf 20 félaga skráð á Aðalmarkaði og Nasdaq First North á Íslandi. Nemur heildarmarkaðsvirði skráðra félaga 1.011 milljarði króna (samanborið við 1.014 milljarða í janúar).

Skuldabréf:

·         Heildarviðskipti með skuldabréf námu 85 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 4,3 milljarða veltu á dag. Þetta er 9% hækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í janúar námu 3,9 milljörðum á dag), en 17% lækkun frá fyrra ári (viðskipti í febrúar 2016 námu 5,1 milljarði á dag).

·         Alls námu viðskipti með ríkisbréf 68,6 milljörðum, viðskipti með bankabréf námu 8,3 milljörðum, og viðskipti með íbúðabréf námu 4,0 milljörðum. Mest voru viðskipti með RIKB 20 0205, 12,6 milljarðar, RIKB 22 1026, 12,4 milljarðar, RIKB 25 0612, 9,9 milljarðar, RIKB 19 0226, 8,6 milljarðar og RIKB 28 1115, 7,9 milljarðar.

·         Á skuldabréfamarkaði var Íslandsbanki með mestu hlutdeildina 21,4% (18,8% á árinu), Arion banki með 19,4% (19,2% á árinu), og Landsbankinn með 16,5% (16,6% á árinu).

·         Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) hækkaði um 0,3% í febrúar og stendur í 1.255 stigum.  Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) hækkaði um 1,9% og sú verðtryggða (NOMXIREAL) lækkaði um 0,4%.                               

Sjá myndir í viðhengi fyrir hlutdeild kauphallaraðila á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði (excel).

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá http://www.nasdaqomx.com/transactions/markets/nordic/statistics

#

 

Um Nasdaq

Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 85 mörkuðum í 50 löndum og  knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 3,800 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 10,1 billjón Bandaríkjadala og um það bil 18,000 viðskiptavina. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu http://business.nasdaq.com/

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.

Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm.

 

         Fjölmiðlar:
         Kristín Jóhanns
         kristin.johannsdottir@nasdaq.com
         868 9836

Skuldabréf feb Hlutabréf feb

Attachments

Hlutd myndir 201702.xlsx 2017_0301_Viðskiptayfirlit fyrir febrúar 2017.pdf