REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 16. viku 2017 keypti Reitir fasteignafélag hf. 5.848 eigin hluti fyrir 584.800 kr. eins og hér segir: 

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskipta-verð Kaup-
verð
Eigin hlutir
eftir viðskipti
19.4.2017 11:35 5.848 100 584.800 705.848
Samtals   5.848   584.800  

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 27. mars 2017, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 24. mars 2017.

Reitir hafa nú keypt samtals 705.848 hluti í félaginu sem samsvarar 4,71% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 69.359.800 krónum sem samsvarar 4,62% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 705.848 hluti, eða 0,10% af heildarhlutafé félagsins eins og það verður eftir að lækkun hlutafjár sem samþykkt var á aðalfundi félagsins þann 14. mars sl. hefur formlega verið skráð.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 15.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð, eða á aðalfundardegi félagsins 2018. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.