Kvika banki hf.: Niðurstöður fundar með skuldabréfaeigendum


Niðurstöður fundar Kviku banka hf. með skuldabréfaeigendum í skuldabréfaflokknum KVB 15 01 sem haldinn var föstudaginn 19. maí 2017 kl. 13:00 í Borgartúni 25, 105 Reykjavík.

1. Ákveðið var að breyta skilmála í skuldabréfaflokknum KVB 15 01 um hækkun heildarheimildar skv. útgáfusamningi þannig að skilmálinn verði framvegis á eftirfarandi máta:

 (I) ,,Heildarheimild skv. samningi: 1.000.000.000,- kr. (krónur eittþúsund milljónir)"

2. Ákveðið var að staðfesta heimild Kviku til að undirrita viðauka við útgáfusamning skuldabréfaflokksins KVB 15 01, þar sem gerð er grein fyrir þeirri breytingu sem samþykkt var á fundi skuldabréfaeigenda. 

Einu fundargögnin voru viðauki við útgáfusamning skuldabréfaflokksins KVB 15 01.

Viðhengi: Viðauki við útgáfusamning 

Attachments:

http://www.globenewswire.com/NewsRoom/AttachmentNg/96a7f265-8195-4e08-8b0e-4044507ad695


Attachments

Viðauki við útgáfusamning.pdf