Síminn: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 22. viku 2017 keypti Síminn hf. 10.000.000 eigin hluti að kaupverði 42.050.000 kr. samkvæmt sundurliðun hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð (kr.) Eigin hlutir eftir viðskipti
30.5.2017 10:46 5.000.000 4,18 20.900.000 30.000.000
2.6.2017 11:44 5.000.000 4,23 21.150.000 35.000.000
    10.000.000   42.050.000 35.000.000

Síminn átti 25.000.000 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 35.000.000 eigin hluti eða sem nemur 0,37% af útgefnum hlutum í félaginu.

Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í  Kauphöll Íslands hf. þann 15. maí 2017. 

Síminn hefur keypt samtals 35.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,37% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 146.700.000 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 1.102 milljónum króna. Áætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins árið 2018, en þó aldrei lengur en til 16. mars 2018 eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.

Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

Nánari upplýsingar veitir Ásta Nína Benediktsdóttir fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is