REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 22. viku 2017 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.400.000 eigin hluti fyrir 146.650.000 kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskipta-verð Kaupverð     Eigin hlutir eftir viðskipti
29.5.2017 15:07 350.000 106,0 37.100.000 4.637.296
30.5.2017 10:30 350.000 105,0 36.750.000 4.987.296
31.5.2017 09:30 350.000 104,0 36.400.000 5.337.296
2.6.2017 11:49 78.405 104,0 8.154.120 5.415.701
2.6.2017 13:03 38.400 104,0 3.993.600 5.454.101
2.6.2017 15:01 233.195 104,0 24.252.280 5.687.296
Samtals   1.400.000   146.650.000  

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 27. mars 2017, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 24. mars 2017.                              
                              
Reitir hafa nú keypt samtals 5.687.296 hluti í félaginu sem samsvarar 37,92% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 596.277.426 krónum sem samsvarar 39,75% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 5.687.296 hluti, eða 0,79% af heildarhlutafé félagsins.                              
                              
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 15.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð, eða á aðalfundardegi félagsins 2018. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.