Kvika banki hf.: Útboð á víxlum 16. júní 2017


Kvika banki hf. heldur útboð á víxlum bankans föstudaginn 16. júní 2017.

Í boði eru víxlar í 6 mánaða flokknum KVB 17 1221 að nafnvirði 2.000 m. kr. Útboðið er lokað og fer fram með hollensku fyrirkomulagi þar sem verð útboðsins ræðst af hæstu samþykktum flötum vöxtum. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m. kr. nafnverðseiningum og verða skráðir í kauphöll Nasdaq Iceland. Tekið er við tilboðum til kl. 16:00 föstudaginn 16. júní. Uppgjörsdagur er 22. júní 2017.

Hægt er að hafa samband við markaðsviðskipti Kviku í síma 540-3220 eða með tölvupósti á vixlar@kvika.is til að fá nánari upplýsingar.