Kvika banki hf.: Birting lýsingar vegna stækkunar útgáfu á víkjandi skuldabréfi í flokknum KVB 15 01


Reykjavík, 19. júní 2017

Kvika banki hf. hefur stækkað útgáfu á víkjandi skuldabréfi í flokknum KVB 15 01 um 450 milljónir króna að nafnvirði og er stærð flokksins 1.000 milljónir króna eftir stækkun.

Fjármálaeftirlitið staðfesti lýsingu vegna útgáfunnar þann 16. júní 2017, og sótt hefur verið um töku skuldabréfanna til viðskipta í Kauphöll Íslands. Útprentuð eintök lýsingarinnar má nálgast í 12 mánuði frá staðfestingu hennar í höfuðstöðvum Kviku, Borgartúni 25, 105 Reykjavík. Rafræn eintök má nálgast á vefsíðu útgefanda http://www.kvika.is/verdbrefalysingar.