Hagar hf. árshlutauppgjör Q1 // mars 2017 – maí 2017


Árshlutareikningur Haga hf. fyrir fyrsta ársfjórðung 2017/18 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 28. júní 2017. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars 2017 til 31. maí 2017. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Endurskoðendur félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf., hafa hvorki endurskoðað né kannað reikninginn.

 

Helstu upplýsingar

  • Hagnaður tímabilsins nam 850 millj. kr. eða 4,5% af veltu.
  • Hagnaður á hlut var 0,74 kr.
  • Vörusala tímabilsins nam 19.048 millj. kr.
  • Framlegð tímabilsins var 24,9%.
  • Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 1.277 millj. kr.
  • Heildareignir samstæðunnar námu 30.871 millj. kr. í lok tímabilsins.
  • Handbært fé félagsins nam 3.027 millj. kr. í lok tímabilsins.
  • Eigið fé félagsins nam 18.262 millj. kr. í lok tímabilsins.
  • Eiginfjárhlutfall var 59,2% í lok tímabilsins.

 

Magnaukning og verðhjöðnun einkennandi á fyrsta fjórðungi rekstrarársins

Vörusala tímabilsins nam 19.048 milljónum króna, samanborið við 19.981 milljón króna árið áður. Sölusamdráttur tímabilsins er 0,9%, ef frá er talin aflögð starfsemi. Sölusamdráttur félagsins á tímabilinu í heild er 4,7% í krónum talið. Aflögð starfsemi er verslun Debenhams í Smáralind, Korpuoutlet, Útilíf Glæsibæ, matvöruhluti Hagkaups Holtagörðum, efri hæð Hagkaups Kringlu og tískuverslanir Evans í Smáralind og Warehouse í Kringlu. Þrátt fyrir sölusamdrátt í krónum talið er magnaukning í mörgum vöruflokkum en í matvöru­verslanahluta samstæðunnar er magnaukning 1,8% milli tímabila, þrátt fyrir 2,6% samdrátt í krónum. Þá eykst fjöldi viðskiptavina matvöruverslana um 1,7% en í þessum tölum er ekki búið að taka tillit til lokunar matvöruhluta Hagkaups Holtagörðum og efri hæðar Hagkaups Kringlu.

Þriggja mánaða meðaltal vísitölu neysluverðs milli rekstrarára hefur hækkað um 1,77% en lækkun vísitölunnar án húsnæðis var 2,05%. Vísitala innkaupa í erlendum gjaldmiðlum, þar sem vegnar eru innkaupamyntir Haga, sýnir umtalsverða styrkingu íslensku krónunnar, eða um 17,4% á samanburðartímabilinu.

Framlegð félagsins var 4.736 milljónir króna, samanborið við 4.912 milljónir króna árið áður eða 24,9% framlegð samanborið við 24,6% á fyrra ári. Ef borin er saman framlegð á milli ára er ljóst að styrking krónunnar hefur skilað sér í lægra vöruverði til hagsbóta fyrir viðskiptavini félagsins. Rekstrarkostnaður í heild lækkar um 80 milljónir króna eða 2,2% milli ára en kostnaðarhlutfallið hækkar úr 18,0% í 18,4%. Launakostnaður hefur hækkað um 5,3% og telur þar mest kjarasamningshækkun, þensla á vinnumarkaði, auk þess sem launakostnaður hefur hækkað tímabundið vegna framkvæmda og lokunar verslana. Þá hefur húsnæðiskostnaður lækkað samhliða fækkun verslunarfermetra.

Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) nam 1.277 milljónum króna, samanborið við 1.373 milljónir króna árið áður. EBITDA-hlutfall var 6,7%, samanborið við 6,9% árið áður.

Hagnaður tímabilsins eftir skatta nam 850 milljónum króna, sem jafngildir 4,5% af veltu en hagnaður eftir skatta á fyrra ári var 948 milljónir eða 4,7% af veltu.

 

Fjárbinding minnkar með lækkun birgða um 949 milljónir króna milli ára

Heildareignir samstæðunnar í lok tímabilsins námu 30.871 milljónum króna. Fastafjármunir voru 19.027 milljónir króna og veltufjármunir 11.844 milljónir króna. Þar af eru birgðir 4.393 milljónir króna en birgðir voru 5.342 milljónir króna ári áður. Birgðir hafa því lækkað um 949 milljónir króna milli ára.

Eigið fé félagsins var 18.262 milljónir króna í lok tímabilsins og eiginfjárhlutfall 59,2%. Heildarskuldir samstæðunnar voru 12.609 milljónir króna, þar af voru langtímaskuldir 3.609 milljónir króna.

Handbært fé frá rekstri á tímabilinu nam 1.090 milljónum króna, samanborið við 1.350 milljónir króna á fyrra ári. Fjárfestingarhreyfingar tímabilsins voru 346 milljónir króna og fjármögnunarhreyfingar 191 milljón króna. Handbært fé í lok tímabilsins var 3.027 milljónir króna, samanborið við 4.733 milljónir króna árið áður. Handbært fé hækkaði um 553 milljónir króna á tímabilinu.

 

Staðan og framtíðarhorfur

Verðhjöðnun setti mark sitt á tekjur á fyrsta ársfjórðungi rekstrarársins eins og áður segir en gera má ráð fyrir áframhaldandi áhrifum hennar. Verðhjöðnun er einkum tilkomin vegna mikillar styrkingar krónunnar, betri innkaupa og lægra innkaupsverðs á samanburðartímabilinu. Stórir kostnaðarliðir hafa hins vegar hækkað, m.a. vegna kjarasamninga og þenslu á vinnumarkaði, auk þess sem flestir leigusamningar félagsins eru bundnir vísitölu neysluverðs, sem hefur hækkað á tímabilinu. Þessar aðstæður eru mikil áskorun fyrir félagið.     

Áfram er unnið að hagræðingu og að bæta verslanir félagsins en líkt og áður hefur komið fram hefur verslun Hagkaups á 2. hæð í Kringlunni verið lokað. Unnið er að breytingu á versluninni á 1. hæð en vegna framkvæmdanna verður verslunin lokuð í 11 vikur á tímabilinu ágúst til október. Áætlað er að opna nýja og endurbætta verslun seinni hluta október. Þá mun verslun Bónus á Smáratorgi loka í um 3 vikur í ágúst en unnið er að stækkun og endurbótum á versluninni.

Eins og fram hefur komið undirritaði félagið samninga um kaup á öllu hlutafé í Lyfju hf. og Olíuverzlun Íslands hf. Kaupin voru undirrituð með fyrirvörum. Vegna kaupa á hlutafé í Lyfju hf. hefur fyrirvörum vegna áreiðanleikakönnunar verið aflétt en enn er fyrirvari í gildi vegna samþykkis Samkeppniseftirlitsins. Vænta má niðurstöðu eftirlitsins vegna Lyfju í júlí nk. Þá eru í gildi fyrirvarar vegna kaupa á Olíuverzlun Íslands hf. um niðurstöður áreiðanleikakönnunar og samþykki Samkeppniseftirlitsins. Vænta má niðurstöðu undir lok árs 2017.

Samkeppnisumhverfi verslunar á Íslandi er að breytast. Félagið hefur undirbúið sig vel undanfarin ár, m.a. með hagræðingaraðgerðum og betri innkaupum. Breytt samkeppnisumhverfi hefur áhrif á veltu og markaðsstöðu félagsins. Of snemmt er að segja til um hve mikil áhrifin verða á afkomu næstu ársfjórðunga og til framtíðar. Félagið rekur yfir 50 verslanir og býður sama verð um land allt. Félagið hefur á að skipa öflugri vöruhúsastarfsemi, starfsfólki með mikla reynslu og mikilvæg viðskiptasambönd við íslenska og erlenda birgja og mun byggja á þeim góða grunni til framtíðar.

 

Fjárhagsdagatal 2017/18

 

2. ársfjórðungur (1. mars – 31. ágúst): 24. október 2017

3. ársfjórðungur (1. mars – 30. nóvember): 11. janúar 2018

4. ársfjórðungur (1. mars – 28. febrúar): 16. maí 2018

 

 

Nánari upplýsingar veitir Finnur Árnason, forstjóri félagsins, í síma 530-5500.


Attachments

Fréttatilkynning Hagar árshlutareikningur 310517.pdf Hagar Ársreikningur 31 5 2017 ísl_m nöfnum.pdf