Viðskiptayfirlit júní 2017 – Nasdaq Iceland


Reykjavík, 3. júlí, 2017 – Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.

Helstu atriði úr viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland (Kauphallarinnar) fyrir júní 2017 eru eftirfarandi:   

Hlutabréf:

·         Heildarviðskipti með hlutabréf í júní námu 49.464 milljónum eða 2.355 milljónum á dag. Það er 32% lækkun frá fyrri mánuði, en í maí námu viðskipti með hlutabréf 3.456 milljónum á dag.  Þetta er 33% hækkun á milli ára (viðskipti í júní 2016 námu 1.771 milljón á dag).

·         Mest voru viðskipti með bréf Haga (HAGA), 6.505 milljónir, Marel (MARL), 6.433 milljónir, N1 (N1), 6.371 milljón, Icelandair Group (ICEAIR), 5.837 milljónir, og Símans (SIMINN), 5.617 milljónir.

·         Úrvalsvísitalan (OMXI8) lækkaði um 2,8% á milli mánaða og stendur nú í 1.763 stigum.

·         Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Arion banki með mestu hlutdeildina, 28,1% (25,6% á árinu), Kvika banki með 18,8% (13,7% á árinu), og Landsbankinn með 17,6% (21,0% á árinu).

·         Í lok júní voru hlutabréf 20 félaga skráð á Aðalmarkaði og Nasdaq First North á Íslandi. Nemur heildarmarkaðsvirði skráðra félaga 1.058 milljörðum króna (samanborið við 1.067 milljarða í maí).

Skuldabréf:

·         Heildarviðskipti með skuldabréf námu 115,5 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 5,5 milljarða veltu á dag. Þetta er 26% hækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í maí námu 4,4 milljörðum á dag), og 28% lækkun frá fyrra ári (viðskipti í júní 2016 námu 7,6 milljörðum á dag).

·         Alls námu viðskipti með ríkisbréf 91,2 milljörðum, viðskipti með bankabréf námu 12,4 milljörðum, og viðskipti með íbúðabréf námu 9,2 milljörðum. Mest voru viðskipti með RIKH 18 1009, 15 milljarðar, RIKB 25 0612, 13,2 milljarðar, RIKB 31 0124, 12,4 milljarðar, RIKB 20 0205, 11 milljarðar og RIKB 28 1115, 10,9 milljarðar.

·         Á skuldabréfamarkaði var Landsbankinn  með mestu hlutdeildina 20,8% (16,3% á árinu), Íslandsbanki með 15,6% (17,9% á árinu), og Kvika banki með 15,5% (15% á árinu).

·         Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) hækkaði um 0,8% í júní og stendur í 1.319 stigum.  Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar  (NOMXINOM) hækkaði um 0,5% og sú verðtryggða (NOMXIREAL) hækkaði um 0,9%.                           

Sjá myndir í viðhengi fyrir hlutdeild kauphallaraðila á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði.

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá http://www.nasdaqomx.com/transactions/markets/nordic/statistics

# 

Um Nasdaq

Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi á alþjóðavísu í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 89 mörkuðum í 50 löndum og  knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 3,800 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 11 billjón Bandaríkjadala. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu http://business.nasdaq.com/

 

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.

 

Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm. 

         Fjölmiðlar:
         Kristín Jóhannsdóttir
         kristin.johannsdottir@nasdaq.com
         s. 868 9836


Attachments

2017_0703_Viðskiptayfirlit fyrir júní 2017.pdf Hlutd myndir 201706.xlsx