Síminn: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 29. viku 2017 keypti Síminn hf. 5.000.000 eigin hluti að kaupverði 20.701.101 kr. samkvæmt sundurliðun hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð (kr.) Eigin hlutir eftir viðskipti
18.7.2017 10:44 110.121 4,15 457.002 105.603.613
18.7.2017 15:17 4.889.879 4,14 20.244.099 110.493.492
    5.000.000   20.701.101  

Síminn átti 105.493.492 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 110.493.492 eigin hluti eða sem nemur 1,17% af útgefnum hlutum í félaginu.

Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í  Kauphöll Íslands hf. þann 15. maí 2017. 

Síminn hefur keypt samtals 110.493.492 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,17% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 466.589.061 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 1.102 milljónum króna. Áætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins árið 2018, en þó aldrei lengur en til 16. mars 2018 eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.

Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

Nánari upplýsingar veitir Ásta Nína Benediktsdóttir fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is