Síminn hf. - Uppgjör 2. ársfjórðungs 2017 verður birt eftir lokun markaðar 24. ágúst 2017

Kynningarfundur verður haldinn 25. ágúst kl. 8:30


Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung 2017 eftir lokun markaðar þann 24. ágúst næstkomandi.

Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn föstudaginn 25. ágúst 2017 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 8:30.

Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.

Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans www.siminn.is/siminn/fjarfestar/fjarhagsupplysingar/uppgjor og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vefslóðinni: https://livestream.com/accounts/11153656/events/7657334/player

Nánari upplýsingar veitir Ásta Nína Benediktsdóttir fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is