Endurskipulagning efnahags Reykjanesbæjar


Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum þann 20. september 2017 eftirfarandi aðgerðir vegna endurskipulagningar efnahags Reykjanesbæjar og Reykjaneshafnar.

Reykjanesbær hefur fengið lánsloforð frá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð um 3,6 milljarða króna sem gerir Reykjanesbæ kleift að endurfjármagna m.a. skuldir Reykjaneshafnar. Lánsloforðinu er sett það skilyrði að endurskipulagning fjárhags samstæðu Reykjanesbæjar leiði til þess að markmiðum aðlögunaráætlunar fyrir árin 2017-2022 sem bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti þann 18. apríl 2017 verði náð og að samkomulag liggi fyrir við Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga um skilyrði varðandi frekari lántökur á tímabili aðlögunaráætlunarinnar.

Frá samþykkt framangreindrar aðlögunaráætlunar hafa fulltrúar Reykjanesbæjar lagt forsendur hennar til grundvallar viðræðum við kröfuhafa og þeirri niðurstöðu sem nú liggur fyrir og er lýst hér að neðan.

Nánar um endurskipulaginu skulda Eignarhaldsfélagsins Fasteignar ehf.

Félaginu verður skipt upp í tvö félög, annars vegar félag sem heldur utan um eignir sem tengjast grunnþjónustu sveitarfélagsins (EFF1) og hins vegar félag sem heldur utan um eignir sem ekki tengjast grunnþjónustu sveitarfélagsins (EFF2). Skuldir félaganna verða endurfjármagnaðar og gerðir við þau leigusamningar. Leigusamningurinn við EFF1 verður til 2038, en leigusamningurinn við EFF2 til 2024. Hafi Reykjanesbær ekki náð niður fyrir lögbundin skuldaviðmið í árslok 2022 getur sveitarfélagið nýtt sér sölurétt á öllu hlutafé í EFF2 til kröfuhafa félagsins og þannig losað um skuldbindingar til lengri tíma.

Endurskipulagning skulda Reykjaneshafnar.

Reykjanesbær mun nýta sér lánafyrirgreiðslu frá Lánasjóði sveitarfélaga og taka lán sem verður endurlánað til Reykjaneshafnar. Reykjaneshöfn mun nýta lánið til þess greiða upp skuldir hafnarinnar, meðal annars skuldabréfaflokkana RNH 16 og RNH 27. Við endurfjármögnunina verður fjármögnun á skuldum Reykjaneshafnar á mun hagstæðari kjörum en nú er. Nú liggur fyrir vilji meirihluta kröfuhafa Reykjaneshafnar fyrir því að fallast á uppgreiðslu og skilmálabreytingar sem lagðar hafa verið til. Hins vegar hefur borist erindi frá einum kröfuhafa þess efnis að hann sætti sig ekki við að lækka vexti frá 15. október 2015 til greiðsludags.

Ekki verða þó allar skuldir hafnarinnar greiddar upp heldur verður hluti þeirra endurfjármagnaður með veð í lóðum hafnarinnar, en sölu á lóðum er ætlað að standa undir greiðslu þeirra lána.

Afborganir af lánunum skulu greiðast eftir því sem hinar veðsettu lóðir seljast og skulu greiðslur til Landsbankans og Íslandsbanka skiptast hlutfallslega miðað við stöðu lána meðan skuld er enn útstandandi samkvæmt báðum lánum.

 

Nánari upplýsingar veitir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri, sími 8252727

Netfang: kjartan.m.kjartansson@reykjanesbaer.is