N1 hf: Birting uppgjörs 3. ársfjórðungs 2017 þann 25. október 2017


N1 birtir uppgjör sitt fyrir 3. ársfjórðung 2017 eftir lokun markaða miðvikudaginn 25. október næstkomandi.

Opinn kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 26. október 2017 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10 - 14 Kópavogi 3. hæð. Eggert Kristófersson forstjóri N1 mun kynna afkomu félagsins og svara spurningum.

Fundurinn hefst kl. 08:30. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 08:00. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu N1: www.n1.is/fjarfestatengsl