Virðing hf. segir upp aðild að Nasdaq Iceland


Virðing hf. (auðkenni: MEG) hefur sagt upp aðild sinni að hlutabréfa- og skuldabréfamörkuðum Nasdaq Iceland hf.  Uppsögnin tekur gildi frá og með mánudeginum 20. nóvember 2017. Uppsögn aðildar kemur til vegna samruna Virðingar hf. við Kviku banka hf. (auðkenni: KVB).