Skeljungur hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun



Í 46. viku 2017, keypti félagið 4.996.200 eigin hluti fyrir 37.721.310 kr. eins og hér segir:

 

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð
17.11.2017 09:52:28 4.996.200 7,55 37.721.310
Samtals   4.996.200   37.721.310


Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 8. nóvember 2017, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 7. nóvember 2017.

 

Skeljungur hefur nú keypt samtals 19.984.800 hluti í félaginu sem samsvarar 9,29% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 150.135.810 krónum sem samsvarar 21,45% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Skeljungur á nú samtals 19.984.800 hluti eða 0,929% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 215.203.185 hlutir, þ.e. 10% eigin fjár, en fjárhæð endurkaupanna verður þó aldrei hærri en 700 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð eða á aðalfundardegi félagsins 2018. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög nr. 2/1995 um hlutafélög og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.

 

Nánari upplýsingar veitir Benedikt Ólafsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, fjarfestar@skeljungur.is, s: 840-3071.