Landsbankinn hf. : Útboð sértryggðra skuldabréfa


Landsbankinn mun halda lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum fimmtudaginn 14. desember kl. 15:00. Boðnir verða til sölu tveir verðtryggðir flokkar, LBANK CBI 24 og LBANK CBI 28 og tveir óverðtryggðir flokkar, LBANK CB 21 og LBANK CB 23.  

Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar í síma 410-7330 eða með tölvupósti, verdbrefamidlun@landsbankinn.is.