OR undirritar samning um viðskiptavakt við Arion banka, Íslandsbanka, Kviku banka og Landsbankann


Orkuveita Reykjavíkur, 2018-02-01 14:20 CET (GLOBE NEWSWIRE) -- Orkuveita Reykjavíkur hefur undirritað samninga við Arion banka hf., Íslandsbanka hf., Kviku banka hf. og Landsbankann hf. um viðskiptavakt á eftirmarkaði með skuldabréf útgefin af OR með auðkennin „OR090524“ og  „OR090546“. Skuldabréfin hafa þegar verið tekin til viðskipta á Nasdaq Iceland en skyldur viðskiptavaka samkvæmt samningi taka gildi þann 7. febrúar nk.

Tilgangur þessa samnings er að efla viðskipti með þau skuldabréf sem samningurinn tekur til, auka seljanleika þeirra á eftirmarkaði og stuðla að eðlilegri verðmyndun.

Viðskiptavakar skuldbinda sig til að setja fram dag hvern, kaup- og sölutilboð í skuldabréfin í Kauphöllinni fyrir opnun markaðar. Tilboð skulu ávallt vera að lágmarki 20 m. kr. í hvorum flokki að nafnverði og skulu tilboð endurnýjuð eigi síðar en innan 15 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið.

Hámarksmunur kaup- og sölutilboða viðskiptavaka ákvarðast af verði gildra tilboða og má mest vera 1,0%.

Eigi viðskiptavaki, á einum viðskiptadegi, viðskipti fyrir samanlagt 60 m. kr. eða meira að nafnvirði í ákveðnum flokki í sjálfvirkri pörun er honum heimilt að víkja frá hámarksmun kaup- og sölutilboða það sem eftir lifir viðskipadags í þeim flokki.

Frá gildistöku samninga um viðskiptavakt geta viðskiptavakar fengið tímabundin bréfalán í flokki þeirra skuldabréfa sem samningurinn tekur til.

Nánari upplýsingar:
Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Fjármála OR, sími 516-6100, netfang ingvar.stefansson@or.is