Landsbankinn hf. : Grunnlýsing útgáfuramma sértryggðra skuldabréfa


Landsbankinn hefur birt  grunnlýsingu fyrir útgáfuramma sértryggðra skuldabréfa sem dagsett er 13. apríl 2018.

Grunnlýsingin er á ensku og er birt á rafrænu formi á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. Útprentuð eintök af grunnlýsingunni má nálgast í höfuðstöðvum bankans að Austurstræti 11 í Reykjavík.