Arion banki lýkur víxlaútboði


Arion banki hf. lauk í dag, mánudag, útboði á víxlum til tólf, sex og fimm mánaða.  Í heild bárust 27 tilboð upp á 3.680 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 1.620 milljónir kr.

Í heild bárust 9 tilboð í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 800 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,28% - 4,37%.  Samþykkt voru tilboð að nafnverði 320 milljónir á 4,30% flötum vöxtum.

Í heild bárust 16 tilboð í 6 mánaða víxilinn að fjárhæð 2.680 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,28% - 4,38%.  Samþykkt voru tilboð að nafnverði 1.300 milljónir á 4,33% flötum vöxtum.

Í heild bárust 2 tilboð í 12 mánaða víxilinn að fjárhæð 200 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,55% - 4,70%. Öllum tilboðum var hafnað að þessu sinni.

Stefnt er að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi 20 Apríl.                      

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka haraldur.eidsson@arionbanki.is s: 856-7108.