Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa


Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu.

Heildartilboð í útboðinu voru 24 talsins og námu samtals 3.900 m. kr. að nafnverði.

Átján tilboð að fjárhæð 3.040 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 24 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,54%-2,59%. Tilboðum að fjárhæð 1.520 m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,56%. Heildarstærð flokksins verður 14.380 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Sex tilboð að fjárhæð 860 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 28 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,52%-2,57%. Tilboðum að fjárhæð 660 m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,55%. Heildarstærð flokksins verður 25.440 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 24. apríl 2018. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.