Marel: Uppgjör 1. ársfjórðungs 2018 - Fjárfestafundur 24. apríl 2018


Marel hf. mun birta fyrsta árshlutareikning sinn fyrir árið 2018 eftir lokun markaðar þann 23. apríl 2018.

Fundur með markaðsaðilum

Þriðjudaginn 24. apríl 2018 kl. 8:30 verður haldinn afkomufundur með markaðsaðilum og fjárfestum. Þar munu Árni Oddur Þórðarson, forstjóri og Linda Jónsdóttir, fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri. 

Kynningarfundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins, Austurhrauni 9 í Garðabæ. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8:00.

Fundinum verður einnig vefvarpað á www.marel.com/webcast

Fjárhagsdagatal

  • 1F 2018 – 23. apríl 2018
  • 2F 2018 – 25. júlí 2018
  • 3F 2018 – 31. október 2018
  • 4F 2018 – 6. febrúar 2019

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veitir fjárfestatengill félagsins Tinna Molphy í gegnum netfangið tinna.molphy@marel.com.