Source: Reykjavíkurborg

Útgáfuáætlun Reykjavíkurborgar fyrir seinni hluta árs 2018

Í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2018 kemur fram að Reykjavíkurborg áætlar lántökur að fjárhæð 5.714 mkr. vegna framkvæmda. Engin útboð hafa verið haldin það sem af er ári 2018.

Borgarráð samþykkti á fundi sínum 17. maí 2018 eftirfarandi útboðsdagsetningar fyrir seinni hluta árs 2018.

Skuldabréfaútboð Reykjavíkurborgar verða á eftirfarandi dögum: 15. ágúst, 12. september, 10. október, 14. nóvember, 12. desember.

Gert er ráð fyrir að lántakan verði framkvæmd með stækkun á verðtryggðum skuldabréfaflokki RVK 32 1 og óverðtryggðum skuldabréfaflokki RVKN 35 1. Einnig er heimilt að bjóða út í verðtryggða skuldabréfaflokknum RVK 53 1

Heildarstærð RVK 32 1 er ISK 1.440.000.000 að nafnvirði. Heildarstærð RVKN 35 1 er ISK 6.090.000.000 að nafnvirði. Heildarstærð RVK 53 1 er ISK 22.190.000.000 að nafnvirði.

Tilkynnt verður um fyrirkomulag einstakra útboða í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi a.m.k 1 virkum degi fyrir útboð.

Reykjavíkurborg áskilur sér allan rétt til að víkja frá áætlun þessari og mun þá tilkynna um breytingar þar að lútandi í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi.

Nánari upplýsingar gefur:
Birgir Björn Sigurjónsson
Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
Sími: 411-1111