Stöðugleiki í rekstrarafkomu OR


Stöðugleiki einkennir niðurstöðu reksturs Orkuveitu Reykjavíkur fyrstu þrjá mánuði ársins. Þetta sýnir árshlutareikningur samstæðunnar sem stjórn fyrirtækisins samþykkti í dag. Innan samstæðunnar eru, auk móðurfyrirtækisins, Veitur, Orka náttúrunnar og Gagnaveita Reykjavíkur.

Þrátt fyrir lækkun Veitna á gjaldskrám vatnsveitu og rafmagnsdreifingar vaxa tekjur milli ára. Því ráða aukin umsvif í samfélaginu sem birtist meðal annars í aukinni sölu á heitu vatni. Sveiflur í álverði koma fram í reiknuðum stærðum í árshlutareikningnum. Þær voru óhagstæðar fyrstu þrjá mánuði ársins sem nam 5,2 milljörðum króna. Á sama tímabili 2017 var þessi stærð hagstæð um 5,3 milljarða.  Heildarniðurstaða fyrsta ársfjórðungs 2018 er engu að síður jákvæð sem nemur 390 milljónum króna.

Tillaga um arðgreiðslu

Stjórn OR samþykkti einnig í dag tillögu til aðalfundar fyrirtækisins um að eigendum OR – Reykjavíkurborg, Akraneskaupstað og Borgarbyggð – verði greiddur arður vegna ársins 2017  að fjárhæð 1.250 mkr. Aðalfundur OR verður haldinn í næsta mánuði.

Bjarni Bjarnason, forstjóri OR:

Grunnrekstur Orkuveitu Reykjavíkur er afar traustur. Árshlutareikningurinn endurspeglar aukin umsvif í samfélaginu, við sjáum tekjur vaxa en líka rekstrarkostnað og þurfum að halda vöku okkar. Við erum að þróa áfram þá grunnþjónustu sem fyrirtækin innan OR-samstæðunnar veita. Orkuskipti í samgöngum standa yfir og framundan er snjallvæðing rafdreifikerfisins.

Yfirlit stjórnenda

Fjárhæðir í milljónum króna  F1 2015F1 2016F1 2017F1 2018
Rekstrartekjur11.110  11.336  11.822  12.263 
Rekstrarkostnaður(3.880)(4.079)(4.138)(4.511)
  þ.a. orkukaup og flutningur(1.868)(1.635)(1.701)(1.730)
     
EBITDA7.230  7.257  7.685  7.752 
Afskriftir(2.399)(2.406)(2.384)(2.287)
Rekstrarhagnaður (EBIT)4.831  4.850  5.301  5.464 
     
Afkoma tímabilsins3.276  2.535  6.039  390 

Lykiltölur fjármála OR

Nánari upplýsingar:

Bjarni Bjarnason

forstjóri

516 6100

Viðhengi


Attachments

OR Árshlutareikningur samstæðu F1 2018