Arion banki lýkur víxlaútboði


Arion banki hf. lauk í dag, miðvikudag, útboði á víxlum til tólf, sex og fimm mánaða.  Í heild bárust 15 tilboð upp á 2.040 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 1.460 milljónir kr.

Í heild bárust 4 tilboð í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 400 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,28% - 4,35%.  Samþykkt voru tilboð að nafnverði 100 milljónir á 4,30% flötum vöxtum.

Í heild bárust 10 tilboð í 6 mánaða víxilinn að fjárhæð 1.540 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,28% - 4,35%.  Samþykkt voru tilboð að nafnverði 1.360 milljónir á 4,34% flötum vöxtum.

Í heild barst 1 tilboð í 12 mánaða víxilinn að fjárhæð 100 milljónir kr., á 4,55% flötum vöxtum. Því tilboði var hafnað.

Stefnt er að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi 20 Júní.                        

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka haraldur.eidsson@arionbanki.is s: 856-7108.