Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa


Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem þrír flokkar voru boðnir til sölu.

Heildartilboð í útboðinu voru 19 talsins og námu samtals 4.640 m. kr. að nafnverði.

Tvö tilboð að fjárhæð 240 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 23 á ávöxtunarkröfunni 5,40%. Báðum tilboðum var tekið í flokkinn. Heildarstærð flokksins verður 1.620 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Níu tilboð að fjárhæð 2.300 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 24 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,70%-2,74%. Öllum tilboðum var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,74%. Heildarstærð flokksins verður 17.100 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Átta tilboð að fjárhæð 2.100 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 28 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,69%-2,74%. Öllum tilboðum var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,74%. Heildarstærð flokksins verður 27.860 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 21. júní 2018. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.