Reglubundin tilkynning Sjóvá um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 27 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 47.200.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

VikaDagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
273.7.201815:24:151.000.00015,7515.750.000
275.7.201814:43:091.000.00015,7515.750.000
276.7.201815:24:191.000.00015,7015.700.000
Samtals  3.000.000 47.200.000

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 11. júní 2018.

Sjóvá átti 8.013.156 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 11.013.156 eigin hluti eða sem nemur 0,77% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sjóvá hefur keypt samtals 11.013.156 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,77% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra  180.980.059 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 35.620.429 hlutum eða sem nemur 2,50% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 550.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2019, en þó aldrei lengur en til 8. mars 2019, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“

Nánari upplýsingar veitir:

Sigríður Vala Halldórsdóttir, fjárfestatengill, s. 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is