Leiðrétting: Islandsbanki hf.: Niðurstaða víxlaútboðs


Leiðrétting á frétt sem birt var 16:41 12.07.2018 GMT. Ástæða leiðréttingar er að samþykkt tilboð í 6 mánaða víxilinn voru ekki rétt. Tilboðum var tekið fyrir 2.240 m.kr. en ekki 2.320 m.kr.

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til sex og níu mánaða.

Í heild bárust tilboð upp á 2.620 m.kr. og var tilboðum tekið fyrir 2.240 m.kr.

Seldir voru víxlar til 6 mánaða að nafnverði 2.240 m.kr. á 4,35% flötum vöxtum. Heildartilboð voru 2.420 m.kr. á bilinu 4,30% - 4,40%.

Í 9 mánaða víxilinn bárust tilboð að nafnverði 200 m.kr. á bilinu 4,40% - 4,55%. Öll tilboð voru afþökkuð.

Stefnt er að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Iceland 17. júlí.

Nánari upplýsingar veita: Fjárfestatengsl - Gunnar S. Magnússon, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4665.

 

Póstlisti Íslandsbanka
Ef þú vilt gerast áskrifandi að kauphallarfréttum Íslandsbanka þá vinsamlegast skráðu þig hér: https://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/hafdu-samband/postlisti/

Um Íslandsbanka
Íslandsbanki er leiðandi fjármálafyrirtæki á Íslandi með heildareignir sem nema 1.036 ma. kr. (8,3 milljarðar evra) og með 25-50% markaðshlutdeild á innanlandsmarkaði. Saga Íslandsbanka spannar 140 ár af þjónustu við lykilatvinnuvegi þjóðarinnar en á þessum tíma hefur bankinn byggt upp sérþekkingu á sviði ferðaþjónustu, sjávarútvegs, orku og þjónustu við olíu- og gasiðnað. Framtíðarsýn Íslandsbanka er að vera #1 í þjónustu og vinna þrjú viðskiptasvið þétt saman til að tryggja góð sambönd við viðskiptavini bankans. Til að koma enn betur til móts við þarfir viðskiptavina, þá hefur Íslandsbanki þróað margvíslegar nýjar stafrænar lausnir s.s. öpp fyrir bankaþjónustu, Kreditkort og Kass. Á sama tíma rekur bankinn skilvirkasta útibúanetið með 14 útibú staðsett á lykilstöðum um land allt. Fimmta árið í röð á Íslandsbanki ánægðustu viðskiptavinina á bankamarkaði samkvæmt niðurstöðu Íslensku ánægjuvogarinnar og þá var bankinn einnig útnefndur besti bankinn á Íslandi árið 2017 af tímaritinu The Banker. Íslandsbanki hefur BBB+/A-2 lánshæfismat frá S&P Global Ratings og BBB/F3 frá Fitch Ratings og er eini íslenski bankinn með lánshæfismat frá tveimur alþjóðlegum lánshæfismatsfyrirtækjum. www.islandsbanki.is

Fyrirvari
Framangreind fréttatilkynning gæti vísað til spár um framtíðarhorfur sem er háð áhættu- og óvissuþáttum og getur þýtt að raunverulegur árangur verði umtalsvert frábrugðinn því sem spáð er í þessari fréttatilkynningu. Íslandsbanki hf. hefur ekki skyldu til að, og mun ekki, uppfæra þessar spár um framtíðarhorfur félagsins til að endurspegla atburði og aðstæður sem eiga sér stað eftir útgáfu þessarar fréttatilkynningar. Það er ábyrgð fjárfestis að reiða sig ekki seinna meir á spár um framtíðarhorfur sem eru settar fram í þessari  fréttatilkynningu  þar sem þær eiga eingöngu við á þeim tíma sem hún er gefin út.  Spár um framtíðarhorfur gefa ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur og eru allar yfirlýsingar um framtíðarhorfur félagsins fullgildar í heild sinni með tilliti til þessa fyrirvara.