Orkuveita Reykjavíkur - Niðurstaða úr skuldabréfaútboði


Orkuveita Reykjavíkur lauk í gær, 21. ágúst 2018, útboði á nýjum skuldabréfum. Fossar Markaðir höfðu umsjón með útboðinu fyrir hönd OR. 


Heildareftirspurn í útboðinu nam samtals 5.115 m. kr. að nafnverði. 


Heildartilboð í flokkinn OR090546 voru samtals 2.040 m. kr. á bilinu 2,75% - 2,89%. Tilboðum að fjárhæð 1.580 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 2,85%. 

Heildartilboð í flokkinn OR090524 voru samtals 3.075 m. kr. á bilinu 2,65% - 2,80%. Tilboðum að fjárhæð 2.365 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 2,75%. 


Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 28. ágúst næstkomandi.

 

Nánari upplýsingar veita: 

Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Fjármála OR, sími 516-6100, ingvar.stefansson@or.is

Matei Manolescu, skuldabréfamiðlun Fossa markaða, sími 522 4008, netfang matei.manolescu@fossarmarkets.com