Nýr stjórnarmaður hjá Arion banka


Á hluthafafundi Arion banka sem fram fór miðvikudaginn 5. september var Benedikt Gíslason kjörinn nýr stjórnarmaður.

Stjórn Arion banka skipa nú: Eva Cederbalk, formaður, Brynjólfur Bjarnason, varaformaður, Herdís Dröfn Fjeldsted, Måns Höglund, Steinunn Kristín Þórðardóttir og Benedikt Gíslason.

Í dag starfar Benedikt sem ráðgjafi og situr í stjórn Genís hf., EC Hugbúnaðar ehf. og EC Software Sweden auk þess að vera varamaður í stjórn Brekkuás ehf. Benedikt hefur áður m.a. starfað sem ráðgjafi hjá Kaupþingi og hjá Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, sem framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs MP banka auk þess að hafa sinnt margvíslegum stjórnunarstörfum hjá Straumi-Burðarás fjárfestingarbanka. Þá starfaði Benedikt áður sem framkvæmdastjóri markaðsviðskipta hjá FL Group og hjá eiginviðskiptum og markaðsviðskiptum hjá Íslenska Fjárfestingarbankanum (e. The Icelandic Investment Bank – FBA), síðar Íslandsbanki-FBA. Benedikt sat áður í stjórn Kaupþings og VÍS.

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108.