Niðurstaða úr skuldabréfaútboði Reykjavíkurborgar - Leiðrétting


Reykjavíkurborg var með skuldabréfaútboð í flokknum RVK 32 1 þann 12. september 2018. 


Alls bárust tilboð í RVK 32 1 að nafnvirði ISK 1.300.000.000 á bilinu 2,50% - 2,60%.  Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 100.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,50%. Útistandandi fyrir útboð voru ISK 3.720.000.000 að nafnvirði. Heildarstærð flokksins er nú ISK 3.820.000.000 að nafnvirði.




Nánari upplýsingar gefur:

Birgir Björn Sigurjónsson

Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar

Sími: 693-9321
Netfang: bbs@rvk.is