Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Niðurstaða skuldabréfaútboðs 27. september 2018

Lokuðu útboði Reita fasteignafélags hf. á skuldabréfum þann 27. september 2018 er lokið. Boðin voru til sölu skuldabréf í áður útgefnum og skráðum flokkum, REITIR151244, REITIR151124 og REITIR 22. Tilgangur skuldabréfaútgáfu félagsins er eftir atvikum endurfjármögnun á hluta núverandi skulda félagsins, til fjármögnunar fasteignaþróunar og mögulegra fasteignakaupa sem og til rekstrarþarfa.

Alls bárust tilboð í flokkana þrjá að nafnvirði 2.890 milljóna króna. Var ákveðið að taka tilboðum að nafnvirði 1.890 milljóna króna á ávöxtunarkröfunni 3,10% í flokknum REITIR151124. Tilboðum í flokkana REITIR151244 og REITIR 22 var ekki tekið.

Heildarstærð ofangreindra flokka verður eftirfarandi:

Flokkur: Áður útgefið:  Eftir útgáfu nú:
REITIR151244 35.815.200.000 35.815.200.000
REITIR151124 5.195.000.000 7.085.000.000
REITIR 22 1.155.000.000 1.155.000.000

Gjalddagi áskrifta og afhending bréfa er fyrirhuguð fimmtudaginn 4. október 2018 og óskað verður eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland sama dag.

Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, á netfanginu einar@reitir.is eða í síma 669-4416.