Hluthafafundur í Reitum fasteignafélagi hf. 31. október 2018


Stjórn Reita fasteignafélags hf. boðar til hluthafafundar í félaginu sem haldinn verður miðvikudaginn 31. október 2018 kl. 9:00 á skrifstofu félagsins að Kringlunni 4-12, Reykjavík, 3. hæð.
  

Dagskrá fundarins verður sem hér segir:

1.   Tillaga um breytingar á samþykktum félagsins.

2.   Tillaga um starfsreglur tilnefningarnefndar.

3.   Tillaga um laun tilnefningarnefndar.

4.   Tillaga um skipun tveggja nefndarmanna í tilnefningarnefnd.

5.   Önnur mál, löglega upp borin.

Tillaga um breytingar á samþykktum félagsins varða 15. og 17. gr. samþykktanna, en breytingarnar lúta að því að koma á fót tilnefningarnefnd í félaginu. Tillögur undir dagskrárliðum nr. 3. og 4. eru háðar því að hluthafar samþykki áður tillögur undir dagskrárliðum 1. og 2., að öðrum kosti falla þeir dagskrárliðir niður.

Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafafund fyrir sína hönd.  Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt eða rafrænt umboð á eyðublaði eða í samræmi við eyðublað sem aðgengilegt er á vef félagsins, www.reitir.is/hluthafafundir.  Rafrænt umboð skal sent félaginu á netfangið stjorn@reitir.is áður en fundur hefst.

Ekki er gert ráð fyrir að atkvæðagreiðslur á hluthafafundinum verði skriflegar nema einhver fundarmanna krefjist þess eða fundarstjóri úrskurðar um annað. Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Hluthafar geta óskað eftir því að fá að greiða atkvæði um mál sem eru á dagskrá fundarins bréflega. Skal beiðni um slíka atkvæðagreiðslu hafa borist á skrifstofu félagsins eða á netfangið stjorn@reitir.is eigi síðar en fimm sólarhringum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 9.00 föstudaginn 26. október 2018.

Hluthafar hafa heimild til að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á fundinum og skal kröfu þar um fylgja rökstuðningur eða drög að ályktun sem berast skal stjórn félagsins skriflega eða rafrænt á netfangið stjorn@reitir.is í síðasta lagi 20. október næstkomandi fyrir kl. 16.00.

Dagskrá hluthafafundarins og tillögur sem fyrir hann verða lagðar, svo og aðrar nauðsynlegar upplýsingar um fundinn má finna á vef félagsins, www.reitir.is/hluthafafundir, auk þess sem tillögurnar eru í sérstöku viðhengi með tilkynningu þessari.

Hluthafar og umboðsmenn geta skráð sig á fundinn á fundarstað hálfri klukkustund áður en hann hefst og fengið fundargögn afhent.

Stjórn Reita fasteignafélags hf.

Viðhengi


Attachments

Dagskrá hluthafafundar 31.10.2018 Tillögur stjórnar til hluthafafundar 31.10.2018