Árlegt mat Fjármálaeftirlitsins á eiginfjárþörf Arion banka


Fjármálaeftirlitið (FME) leggur árlega mat á áhættuþætti í starfsemi kerfislega mikilvægra fjármálafyrirtækja í könnunar- og matsferli (e. Supervisory Review and Evaluation Process, SREP). Ferlið felur m.a. í sér mat á eiginfjárþörf fjármálafyrirtækja sem leiðir af sér viðbótareiginfjárkröfu undir Stoð II (e. Pillar II).

Niðurstaða þessa árlega ferlis fyrir Arion banka liggur nú fyrir. Bankinn skal viðhalda viðbótareiginfjárkröfu sem nemur 2,9% af áhættugrunni, sem er lækkun um 0,5 prósentustig frá fyrra mati. Heildareiginfjárkrafa bankans, að teknu tilliti til eiginfjárauka, lækkar við það úr 19,8% í 19,3%.

Hækkun sveiflujöfnunarauka skv. ákvörðun FME í maí 2018 mun taka gildi fyrir íslenskar fjármálastofnanir í maí 2019 og við það hækkar eiginfjárkrafan aftur í 19,8% að öðru óbreyttu.

Meðfylgjandi er gagnsæistilkynning FME.


Tengiliðir

Theódór Friðbertsson, fjárfestatengslum Arion banka, IR@arionbanki.is, s. 856 6760

Haraldur Guðni Eiðsson, samskiptasviði Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108.

Viðhengi


Attachments

FME - Gagnsaeistilkynning SREP AB 12102018