Islandsbanki hf.: Íslandsbanki undirritar samning um viðskiptavakt við Arion banka, Kviku og Landsbankann


Íslandsbanki hf. hefur undirritað samninga við Arion banka hf., Kviku hf. og Landsbankann um viðskiptavakt á eftirmarkaði með sértryggð skuldabréf útgefin af Íslandsbanka. Skuldabréfin eru skráð á Nasdaq Iceland og taka skyldur viðskiptavaka samkvæmt samningi gildi þann 16. október 2018.

Tilgangur þessa samnings er að efla viðskipti með þau skuldabréf sem samningurinn tekur til, auka seljanleika þeirra á eftirmarkaði og stuðla að eðlilegri verðmyndun.

Viðskiptavakar munu daglega setja fram kaup- og sölutilboð í skuldabréfin.

Lágmarksfjárhæð tilboða í markflokka skuldabréfa skal vera 80 m.kr. en lágmarksfjárhæð tilboða í aðra flokka skal vera 20 m.kr.  Fyrir markflokka gildir að ef útistandandi nafnvirði er minna en 10 ma. kr. skal fjárhæð tilboða vera 60 m.kr. en 80 m.kr. þegar stærð flokks hefur náð 10 ma. kr. að nafnvirði. Skuldabréfaflokkarnir ISLA CB 23, ISLA CBI 26 og ISLA CBI 30 eru markflokkar.

Hámarksmunur kaup- og sölutilboða fer eftir árafjölda til lokagjalddaga á hverjum tíma sbr. neðangreinda töflu:

Eftirstandandi líftími bréfs
Hámarksverðbil   
0 - 6 mánuðirEkkert
   
6 mánuðir - 2 ár0.20%   
2 - 4 ár0.30%   
4 - 6 ár0.35%   
6 - 9 ár0.60%   
9 - 12 ár0.70%   
12 - 18 ár1.00%   
18 ár eða lengra1.15%   

Verðtryggðir flokkar sem eru ótækir til frekari útgáfu vegna reglna Seðlabanka Íslands nr. 492/2001 um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár, með síðari breytingum, eru undanþegnir ofangreindum kvöðum um hámarksmun kaup- og sölutilboða.

Skyldur einstakra viðskiptavaka falla niður á tilteknum viðskiptadegi ef viðskiptavaki hefur átt viðskipti (tilgreind "AUTO") með sértryggð skuldabréf fyrir 500 m. kr. að nafnverði samanlagt í þeim flokkum sem samningurinn nær til.

Frá gildistöku samninga um viðskiptavakt geta viðskiptavakar fengið tímabundin bréfalán í flokki þeirra skuldabréfa sem samningurinn tekur til. Hámarkslán til einstakra viðskiptavaka er 320 m. kr. að nafnverði í hverjum markflokki og flokkum sem áður hafa verið skilgreindir sem markflokkar en 80 m. kr. í öðrum flokkum.

Nánari upplýsingar veita:

  • Fjárfestatengsl - Gunnar S. Magnússon, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4665.


Póstlisti Íslandsbanka
Ef þú vilt gerast áskrifandi að kauphallarfréttum Íslandsbanka þá vinsamlegast skráðu þig hér: https://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/hafdu-samband/postlisti/

Um Íslandsbanka
Íslandsbanki er leiðandi fjármálafyrirtæki á Íslandi með heildareignir sem nema 1.036 ma. kr. (8,3 milljarðar evra) og með 25-50% markaðshlutdeild á innanlandsmarkaði. Saga Íslandsbanka spannar 140 ár af þjónustu við lykilatvinnuvegi þjóðarinnar en á þessum tíma hefur bankinn byggt upp sérþekkingu á sviði ferðaþjónustu, sjávarútvegs, orku og þjónustu við olíu- og gasiðnað. Framtíðarsýn Íslandsbanka er að vera #1 í þjónustu og vinna þrjú viðskiptasvið þétt saman til að tryggja góð sambönd við viðskiptavini bankans. Til að koma enn betur til móts við þarfir viðskiptavina, þá hefur Íslandsbanki þróað margvíslegar nýjar stafrænar lausnir s.s. öpp fyrir bankaþjónustu, Kreditkort og Kass. Á sama tíma rekur bankinn skilvirkasta útibúanetið með 14 útibú staðsett á lykilstöðum um land allt. Fimmta árið í röð á Íslandsbanki ánægðustu viðskiptavinina á bankamarkaði samkvæmt niðurstöðu Íslensku ánægjuvogarinnar og þá var bankinn einnig útnefndur besti bankinn á Íslandi árið 2017 af tímaritinu The Banker. Íslandsbanki hefur BBB+/A-2 lánshæfismat frá S&P Global Ratings og BBB/F3 frá Fitch Ratings og er eini íslenski bankinn með lánshæfismat frá tveimur alþjóðlegum lánshæfismatsfyrirtækjum. www.islandsbanki.is

Fyrirvari
Framangreind fréttatilkynning gæti vísað til spár um framtíðarhorfur sem er háð áhættu- og óvissuþáttum og getur þýtt að raunverulegur árangur verði umtalsvert frábrugðinn því sem spáð er í þessari fréttatilkynningu. Íslandsbanki hf. hefur ekki skyldu til að, og mun ekki, uppfæra þessar spár um framtíðarhorfur félagsins til að endurspegla atburði og aðstæður sem eiga sér stað eftir útgáfu þessarar fréttatilkynningar. Það er ábyrgð fjárfestis að reiða sig ekki seinna meir á spár um framtíðarhorfur sem eru settar fram í þessari  fréttatilkynningu  þar sem þær eiga eingöngu við á þeim tíma sem hún er gefin út.  Spár um framtíðarhorfur gefa ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur og eru allar yfirlýsingar um framtíðarhorfur félagsins fullgildar í heild sinni með tilliti til þessa fyrirvara.