Source: Sýn hf.

Sýn hf. : Samruninn tekur að skila ávinningi með 21% hækkun EBITDA

Árshlutareikningur Sýnar hf. fyrir þriðja ársfjórðung 2018 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 7. nóvember 2018. Í desember 2017 keypti félagið tilteknar eignir og rekstur 365 miðla hf. og gætir áhrifa af því á samanburð fjárhæða milli ára.

· Tekjur á þriðja ársfjórðungi 2018 námu 5.449 m.kr. sem er hækkun um 59% á milli ára. Tekjur á fyrstu 9 mánuðum ársins jukust um 6.233 m.kr. eða 63%.
· EBITDA hagnaður nam 1.032 m.kr. á ársfjórðungnum sem er hækkun um 178 m.kr. milli ára. EBITDA hagnaður á fyrstu níu mánuðum ársins nam 2.468 m.kr., sem er 6% hækkun á milli ára.
· Aðlagaður EBITDA hagnaður á 3F að teknu tilliti til einskiptisliða nam 1.038 m.kr. sem er 21% hækkun milli ára. Aðlagaður EBITDA hagnaður á fyrstu 9 mánuðum ársins nam 2.619 m.kr. sem er 10% aukning milli ára.
· Hagnaður tímabilsins nam 226 m.kr. sem er 22% lækkun á milli ára. Hagnaður á fyrstu 9 mánuðum ársins var 278 m. kr., sem er 62% lækkun milli ára.
· Hagnaður á hlut var 0,76 á 3F en hagnaður á hlut á fyrstu 9 mánuðum ársins var 0,94.
· Fjárfestingahreyfingar samstæðunnar námu 516 m.kr. á fjórðungnum sem er 40% hækkun á milli ára og má meðal annars rekja til fjárfestinga í húsnæði og kerfum tengt samrunaverkefni og útskiptingu á myndlyklum.
· Horfur fyrir árið 2018 voru uppfærðar 1. nóvember 2018. Fyrirliggjandi EBITDA horfur fyrir árið 2018 eru um 3.600 m.kr. af reglulegri starfsemi. Einskiptisliðir fyrstu 9 mánuðina eru 151 m.kr. en búist er við óverulegum einskiptisliðum í tengslum við kaupin á síðasta fjórðungnum. Fjárfestingarhlutfall er áætlað um 11% af tekjum sem er hærra en búist var við einkum vegna fjárfestinga í tengslum við flutninga myndvera og starfsmanna í lok ársins.

Stefán Sigurðsson, forstjóri:
"Ánægjulegt var að sjá samrunann taka að skila sér í uppgjöri þriðja fjórðungs þar sem EBITDA var 1.032 m.kr. og jókst um 21% frá sama tímabili í fyrra. Þar sem full samlegð er ekki enn komin í reksturinn, og kostnaðarstig fyrirtækisins er hærra en búast mátti við, ættu næstu fjórðungar að sýna stöðugt aukinn rekstrarhagnað í samræmi við þriðja fjórðung bæði árið 2019 og 2020. Markmið stjórnenda er að EBITDA fyrir fjórðunga félagsins geti byggst upp í 1,0 til 1,4ma kr. í samræmi við áætlanir samrunans sem gerðu ráð fyrir fullri samlegð að loknum 18 mánuðum.

Félagið þurfti því miður að lækka afkomuhorfur fyrir árið 2018 einkum vegna þess að samrunaverkefnin hafa haft meiri áhrif á starfsemi og lengur en spáð var. Þetta hefur haft þau áhrif að kostnaðarstig fyrirtækisins hefur verið hærra en búist var við þar sem rekstrarverkefni hafa skilað sér hægar auk þess sem ytri kostnaður og launakostnaður hefur verið hærri í tengslum við álag og yfirvinnu við yfirfærslu kerfa og flutninga, fækkun stöðugilda er þó í takt við markmið samrunans. Því til viðbótar hefur gengisveiking krónunnar haft neikvæð áhrif sérstaklega á horfur fjórða fjórðungs. Góðu fréttirnar eru að álag vegna samrunans mun ekki vara að eilífu og að samrunaverkefnið er langt komið. Með hverjum deginum verður reksturinn eðlilegri og eftir að búið er að færa alla starfsemi og starfsmenn að Suðurlandsbraut með tilfærslu myndvera við áramót séu umfangsmestu verkefnin að baki.

Stjórnendur vinna hörðum höndum að skilgreindum aðgerðum sem hafa áhrif á horfur fyrirtækisins og telja ekki forsendur á þessu stigi til að breyta útliti fyrir rekstur ársins 2019 um 4.600 til 5.000 m.kr. þrátt fyrir lækkun afkomuhorfa fyrir 2018. Unnið er á mörgum vígstöðvum við að ná markmiðum samrunans. Nú þegar hefur verið gripið til aðgerða sem munu meðal annars hækka tekjur á nýju ári í tengslum við viðbrögð við gengisbreytingum, samlegð í tengslum við birgjasamninga hafa áhrif til lækkunar kostnaðar alls næsta árs, rekstrarverkefni munu halda áfram að skila bættum rekstri. Stöðugildi verða á öðrum árshelmingi þegar orðin 5% færri en við yfirtöku og áætlanir gera ráð fyrir að með minna álagi verði þau orðin 10% færri frá yfirtöku á síðari hluta ársins 2019 í tengslum við eðlilega starfsamannaveltu. Við gerum því ráð fyrir að skila stigvaxandi rekstrarniðurstöðu fjórðunga vel inn á árið 2020."
Attachments: