Útboð Arion banka á 6 og 5 mánaða víxlum – ARION 190520 og ARION 190423


Arion banki verður með víxlaútboð miðvikudaginn 14. nóvember 2018.  Um er að ræða víxla til 6 mánaða og 5 mánaða með gjalddaga 20. maí 2019 og 23. apríl 2019.  Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið verdbrefamidlun@arionbanki.is fyrir kl. 16:00 þann 14. nóvember en greiðslu- og uppgjörsdagur er 20. nóvember  2018.

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108.