Arion banki: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa


Arion banki hf. lauk í dag útboði á þremur markflokkum sértryggðra skuldabréfa.

Heildareftirspurn í útboðinu var 5.140 m. kr. og fjöldi tilboða var 28.

Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 48 bárust 16 tilboð að nafnvirði samtals 3.180 m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,65-2,79%. Tilboðum að nafnvirði 2.980 m.kr. á kröfunni 2,78% voru samþykkt. Heildarstærð flokksins verður 11.680 m.kr. að nafnvirði eftir útgáfuna.  

Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 25 bárust 9 tilboð að nafnvirði samtals 1.480 m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,24 - 2,29%. Öll tilboð í ARION CBI 25 voru samþykkt á kröfunni 2,29%. Heildarstærð flokksins verður 37.940 m.kr. eftir útgáfuna. 

Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 22 bárust 3 tilboð að nafnvirði samtals 480 m. kr., á ávöxtunarkröfu  á bilinu 6,32-6,33%.  Öll tilboð í ARION CB 22 voru samþykkt á kröfunni 6,33%. Heildarstærð flokksins verður 28.720 m.kr eftir útgáfuna.

Um er að ræða stækkun á þegar útgefnum skuldabréfaflokkum sem hafa verið til viðskipta á Nasdaq Ísland. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Ísland þann 12. desemberr 2018.

Í heild hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 121.020 m. kr. og þar af 31.600 m. kr á þessu ári.

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka haraldur.eidsson@arionbanki.is s: 856-7108.